31.7.04

Við afmæli undirbúa vera.

Nú er að taka við ofurspíttaður afmælisundirbúningur. Við eigum eftir að gera helling!! Hvernig við förum að því veit ég ekki en sem betur fer er búið að seinka afmælinu til kl.5. Finnur er allur bæklaður með læsta öxl. Ég sótti hann einmitt snemma í vinnuna í gær því hann var orðinn svo ónýtur í öxlunum. Þetta verður afmæli með krambúleruðu afmælisbarni.

Helstu fréttir dagsins eru samt þær að Ragnheiður "litla" frænka mín er 14 ára í dag.... Ekkert svo lítil lengur, og hefur líklega ekki verið í svolítinn tíma. Ég meina hún er að ná mér í hæð!! Ohhh, ég verð að stækka... Hmmm eða eignast tímastoppara... Hvort ætli sé raunhæfara?....
Allavega, til hamingju með afmælið!!!!

2 Ummæli:

Þann 6:23 f.h. , Blogger Una sagði...

Tókst vel hjá ykkur ! Takk fyrir mig.

 
Þann 7:59 f.h. , Blogger Steinunn sagði...

Una Eydís!! Hélt í smá stund að þú værir hin Unan:) Skildi ekkert fyrir hvað hún væri að þakka mér!
En ég segi fyrir hönd heimilisfólksins, takktakk:)

 

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim