29.7.04

Ammli...

Við Anna skrópuðum í leikskólanum í gær til að geta farið með Hrefnu, Unu og Baldri í IKEA:)
Dagurinn flaug og við vorum öll alveg þvílíkt dösuð eftir allt.

Anna Sólrún er með fjórar tennur eins og ég hef áður sagt, það fyndna er að í efri gómi eru það ekki framtennurnar heldur augntennurnar. Þannig að þegar Anna hlær þá sést í "víg"tennurnar hennar;) Ég er farin að kalla hana litlu vampíruna. Við tókum myndir af þessu sem ættu að koma á heimasíðuna hjá Finni og Hrefnu bráðlega... Eftir mánuð líklega;)

Finnur á afmæli í dag, hann er orðinn 30ára!!! Þannig að þetta er stórafmæli:) Hann ætlar að halda upp á það á laugardaginn, afmælisdaginn hennar Ragnheiðar frænku. Þá verður útiveisla. Fínt við útiveislur hér er að það þarf aldrei að hafa áhyggjur af veðrinu. Bara að það sé örugglega skuggi yfir grasinu;)

2 Ummæli:

Þann 12:08 f.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

Til hamingju Finnur ;)
-Berglind

 
Þann 7:21 f.h. , Blogger Finnur sagði...

Takk takk fyrir afmæliskveðjuna! :)

 

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim