29.11.06

Namminamm

Ég lykta af hrefnukjöt... ótrúlega góóóóóðu hrefnukjöti. Takk fyrir samveruna stelpur mínar og kæra “leynivinkona” ég er strax farin að upphugsa góða gjöf ;)

24.11.06

Jess!!

Búin að klára allt sem ég á að skila af mér á þessari önn :D

23.11.06

...bla!

B.t.w. rosalega er þátturinn The Player ótrúlega asnalegur!!!

Frávik fá norminu

Var á jólabóka upplestri í Mosó í kvöld. Gaman að því, langar að lesa þær allar;)
Ein spurning til rithöfunda var eitthvað um frávik frá norminu; þar sem taka þarf fram, til dæmis ef sögupersóna er kona því annars gerir lesandi sjálfkrafa ráð fyrir að það sé karl.
Mér finnst rosalega merkilegt hversu satt þetta er! Ég hefði örugglega gert ráð fyrir að ef talað væri um rithöfund frá Hvíta-Rússlandi þá myndi ég sjálfkrafa gera ráð fyrir að það væri karl nema ef annað er tekið fram.
Ef ég læsi sögu um hóp fólks, allar upplýsingar væru gefnar fyrir utan hvers kyns fólkið væri, ætli ég gerði þá ráð fyrir að allt væru þetta karlar?

Eins og með gátuna sem ég hefði örugglega aldrei fattað ef ég hefði ekki fengið svarið gefið:
Faðir og sonur lenda í bílslysi og eru fluttir á sjúkrahús, báðir lífshættulega slasaðir. Þeir eru fluttir á sitthvora skurðstofuna. Inn til sonarins kemur skurðlæknir sem hikar þegar hann gengur inn og segir: "Ég get ekki framkvæmt þessa aðgerð. Þetta er sonur minn!" Gátan er samsagt sú; hvernig getur það passað?


Annað frávik frá norminu svona til að eyðileggja þessa djúpu pælingu. Ég sá bíl með stýrið hægra megin í dag. Var búin að líta oft yfir og farið að finnast frekar "krípí" að þar var enginn bílstjóri, bara farþegi. Ohhh, maður fer strax að ímynda sér eitthvað fríkí þegar eitthvað er ekki eins og venjulega.

19.11.06

Skin og skúrir


Hver segir svo að það sé aldrei hægt að segja til um hvernig veður komi eftir 5mín á Íslandi? Þegar ég fór að sofa í gær var auð jörð, frekar hvasst en bara svona eins og það er búið að vera. Þegar ég vaknaði var svona:


Bíllinn okkar fastur í skafli og ég að sjálfsögðu fór út að ýta;) (á engar myndir af því af því að ég var út að ýta;) Var ég búin að segja að ég fór út að ýta?)
Jeppakallarnir voru eins og hrægammar að veiða fasta bíla upp úr sköflunum. Einar ætlaði sko að komast sjálfur út úr sköflunum nýbúinn að skipta yfir á naglana.


En þeir voru nú þarna tveir og höfðu greyin ekkert að gera þannig að hann leyfði þeim að draga sig bara af góðmennskunni einni saman. Hvað annað?


Mér finnst þetta merkilegt land!