27.7.07

100. færslan :D

Ég er pínu spennt :D Kíktum á íbúð um daginn sem þarf að gera alla upp. Vorum eiginlega að leita að einhverju svoleiðis svo við gætum fengið íbúð ódýrt og Einar er svo klár að hann getur gert hana upp. Aldrei að vita nema ég hjálpi honum eitthvað.... ef ég er í góðu skapi :D
Við gerðum semsagt tilboð í hana í gær, mjög lágt en okkur fannst líka frekar mikið sett á hana. Nú er bara að bíða fram að hádegi og sjá hvað eigandinn segir... ef hann segir eitthvað... ódíródír
Vantar alla þá góðu strauma sem til eru ;) :P

25.7.07

Potterinn

Er loksins komin með seinustu bókina af Harry í hendur... Veit varla hvort ég tími að byrja á henni... Sorglegt að þetta sé bara búið en ég verð samt að fá að lesa endirinn :D