16.11.04

Ég mæli ekki með...

Ég sá örugglega það ógeðslegasta sem ég hef á ævinni séð núna um daginn... Aðeins þess vegna ætla ég að deila því með ykkur:D
Ok, ég er að keyra í bíl (er að vísu farþegi, ekki að það skipti máli). Allt í einu, lengst út í sveit sjáum við nokkra bíla stopp út í vegakanti eins og eitthvað hafi komið fyrir. "Ó, nei! Bílslys!!!" Fyrsta sem ég hugsaði. Keyrum aðeins nær... Sjáum eitthvað liggja í götunni... Sé rjúka úr dótinu sem liggur á jörðinni... Keyrum nær... Keyrum við hliðina á dótinu... lifur, garnir o.s.frv.... aðeins seinna; fullt af blóði... Aðeins seinna; dauður, illa farinn hestur... Það voru alveg þó nokkrir metrar á milli innyflanna og hestsins!!! Virkilega viðbjóðslegt.
Las svo um annan árekstur við hest í mbl.is í dag.

3 Ummæli:

Þann 5:51 e.h. , Anonymous Nafnlaus sagði...

úff, þetta er svakalegt! Ég veit líka til að það verða fjöldamörg dauðaslys á mönnum í Kanada, við það að fólk keyri á elgi... Enda engar smá skepnur.

-Elín Lóa

 
Þann 7:06 e.h. , Blogger Finnur sagði...

Ég hef séð feikinóg af alls konar "ródkill" um ævina (íkorna, þvottabirni, ketti, fugla og skunka) en það er ekki nærri því jafn ógeðslegt og þetta... :( Ojjjj....

Takk fyrir að deila þessu með okkur! :)

 
Þann 12:53 f.h. , Blogger Una sagði...

Æji en leiðinlegt. Hestar eru líka svo stórir svo þetta var í rauninni alveg fjórfalt, hefðbundið ródkill sem þú varst vitni að. Ég er fegin að ég sá þetta ekki.

 

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim