19.6.07

Æðislegt veður

Ég velti því fyrir mér hvort það sé bara ég eða er fólk í vondu skapi í dag? Skil ekki hvernig það er hægt í þessu frábæra veðri! Margir í dag annað hvort eru rosalega frekir og dónalegir eða skella á án þess að kveðja. (Ekki svo að skila að fólk skelli á mig af reiði heldur finnst greinilega ekkert mikilvægt að segja bless í símann).
Til allra annarra vona ég bara að þið njótið dagsins og smælið framan í heiminn, það ætla ég að gera :D :D :D :D ;)

3 Ummæli:

Þann 4:32 f.h. , Blogger Finnur sagði...

Mér leiðast góðir dagar.
- Finnur Fýlustrumpur
:)

 
Þann 2:58 e.h. , Blogger Steinunn sagði...

Hehe, já en Finnsi! Eru ekki allir dagar hjá þér góðir dagar? Alltaf sól og gott veður;)

 
Þann 4:31 e.h. , Blogger Finnur sagði...

Jújú, sól og blíða hér eins og alltaf. :)

 

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim